Eru eignamörkin skýr?

Vönduð landskiptaþjónusta - áratuga reynsla

Landskipti

Sérfræðingar Landnota Geoform veita ráðgjöf um landskipti og aðstoða landeigendur við ferlið, frá upphafi til samþykktar hjá HMS og stjórnsýslu.

Við GPS mælum með nákvæmum mælitækjum í mörkinni, útbúum löggilda uppdrætti og merkjalýsingu, öflum grunngagna hjá stjórnsýslu og tökum loftmyndir með flygildi ef þess er þörf.

Löggildar merkjalýsingar

Hjá Landnot Geoform starfa sérfræðingar sem hlotið hafa löggildingu sem merkjalýsendur.

Við útbúum merkjalýsingar samkvæmt nýrri Reglugerð um merki fasteigna sem hægt er að finna á Ísland.is Einnig aðstoðum við þig að undirbúa landskiptin og afla allra nauðsynlegra gagna og safna undirskriftum hjá hagsmunaaðilum ef þess er óskað.

Skil á gögnum

Við sjáum um allt ferlið, og skilum inn gögnum til stjórnsýslu og HMS.

Markmiðið er að tryggja viðskiptavinum, landeigendum og öðrum hagsmunaaðilum einhlíta, lögformlega skráningu eignamarka lands samkvæmt samræmdum reglum og kröfum til mælinga, skráningar og birtingar upplýsinga um landamerki og lóðamörk.

Við leysum landskiptin

með þér

Stórhöfða 17 (2. hæð)
110 Reykjavík
s. 617 6624

Dynskálar 30 (D30)
850 Hella
s. 897 4625

landnot@landnot.is